Persónuvernd

Stutt og skýrt: við notum upplýsingarnar sem þú sendir okkur aðeins til að svara þér.

Hvaða upplýsingum er safnað?

Þegar þú sendir fyrirspurn fáum við nafn, símanúmer og, ef þú gefur það upp, netfang og lýsingu á verkinu. Vefurinn notar engar vafrakökur til að fylgjast með þér og engin auglýsingakerfi.

Til hvers?

Til að svara fyrirspurninni og koma henni til þess fyrirtækis Iðnafls sem sér um verkið: Gólflagna, Metatron eða Golfstofunnar. Upplýsingarnar eru ekki seldar né afhentar öðrum í markaðsskyni.

Hver vinnur með þær?

Ábyrgðaraðili er Iðnafl ehf., Tónahvarf 5, 203 Kópavogur. Fyrirspurnir berast okkur í tölvupósti í gegnum þjónustuna Mailgun, á evrópskum netþjónum. Ef þú gefur upp netfang sendum við þér staðfestingu á því.

Hversu lengi?

Eins lengi og þarf til að ljúka erindinu og uppfylla bókhaldsskyldur ef til viðskipta kemur.

Réttindi þín

Þú getur beðið um að sjá, leiðrétta eða eyða upplýsingum um þig með því að senda á info@idnafl.is. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar á personuvernd.is.